Gufunesbær í kvöld!


Mig langar að byrja á því að þakka ykkur kærlega fyrir hlý orð í okkar garð og fyrir að gefa ykkur tíma til að skrifa athugasemdir við færslurnar. Það er svo gaman að sjá hvað þið hafið að segja!

Í kvöld verðum við Freyja í félagsmiðstöðinni Gufunesbæ í skemmtilegri stelpustemningu þar sem við ætlum að lesa upp út bókinni okkar Postulín, Marta María og Þóra ætla einnig að lesa úr nýrri unglingabók sinni og MAC verður með snyrtivörukynningu.

Við munum heimsækja nokkrar félagsmiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu á næstu vikum og erum í óðaönn að bóka upplestra þessa dagana.

Með kærri kveðju,

Alma


Athugasemdir

1 identicon

Þarf að komas á fyrirlestue hjá þér við tækifæri endilega láttu mig vita eða upplestur væri alveg eins gott

Jón Þór Ólafsson (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 02:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband