Talað upp úr svefni...


Það er ekki nóg með að ég tala um og við Freyju flest alla daga heldur er ég víst byrjuð á því á nóttunni líka.
Klukkan fjögur í nótt vakti ég kærastann minn og hann hélt að ég væri glaðvakandi. Samtalið var víst á þessa leið

Ég: ,,Hún leit svo vel út"

Hann; ,,Ha, hvað ertu að tala um?"

Ég; ,,Í þessu ljósbrúna"

Hann; ,,Hvern ertu að tala um?"

Ég; HÚN FREYJA (ég víst orðin mjög pirruð á þessum tímapunkti en hélt svo áfram að sofa eins og ekkert hefði í skorist og hraut víst í kjölfarið) :)

Já, ég man að sjálfsögðu ekkert eftir þessu en það er nokkuð ljóst hvað er ofarlega í huga mér þessa dagana...

Bestu kveðjur,

Alma


Athugasemdir

1 Smámynd: Áslaug Ósk Hinriksdóttir

thíhí!!  Ég kannast við fólk sem talar í svefni, það er svo yndislega fynndið.

Áslaug Ósk Hinriksdóttir, 15.10.2007 kl. 13:25

2 Smámynd: Dísa Dóra

haha já það er greinlegt hvað er þér ofarlega í huga þessa dagana. 

Gangi ykkur vel með framhaldið

Dísa Dóra, 15.10.2007 kl. 19:43

3 Smámynd: Ásta María H Jensen

Haha það hefur verið fyndið að hlusta á þig. 

Ásta María H Jensen, 19.10.2007 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband