Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Höfundur
Velkomin á síðuna okkar!
„ÞAÐ eru forréttindi að lifa með fötlun,“ er ögrandi fullyrðing sem Freyja Haraldsdóttir setur fram í bókinni Postulín sem hún skrifar með vinkonu sinni Ölmu Guðmundsdóttur. Fullyrðingin hljómar glannalega enda efaðist Freyja sjálf um hana. Og þó – oft felur sannleikurinn sig í því sem sýnist vera öfugmæli. Fullyrðingin er hugarhögg því hún kemur róti á hefðbundnar skoðanir – en reynist rétt vegna þess að Freyja hafði tekið ákvörðun um að vera hamingjusöm og hún vill einnig hjálpa öðrum til að sjá leiðina til hamingjunnar. Sársaukinn hefur verið skuggi Freyju frá fæðingu því hún fæddist með genagalla (OI) sem veldur því að bein hennar eru svo viðkvæm að þau geta hrokkið í sundur af litlu tilefni. „Ég var sú eina á Íslandi með OI á svo al varlegu stigi og því var engin reynsla af tilfellum eins og mínu.“ (48). Flestir gera tilraun til að feta vænlega slóð í lífinu til að höndla hina eftirsóknarverðu hamingju en slóð Freyju kostaði strit, puð og púl. „… upp á hvern einasta dag legg ég mig fram um það verkefni. Suma daga er það leikur einn og gengur eins og í sögu, en aðra daga þarf ég að beita öllu mínu hugarafli til að skrika ekki fótur og detta ofan í holuna.“ (235). Bókin Postulín á erindi til allra sem leita hamingjunnar því hún er vitnisburður um einstakling og fjölskyldu sem tekst með einstökum hætti að sigrast á mótlæti. „Ég er manneskja, ekki bara fötlun,“ segir Freyja og bendir fólki um leið á skylduna að gera ávallt greinarmun á persónum og þáttum sem valda mismunun. Freyja er góð fyrirmynd og því er áhugavert að kanna hver hennar fyrirmynd er, fyrir utan fjölskyldumeðlimi. Það er Martin Luther King Jr. og eiginleikarnir sem hann stóð fyrir: Staðfesta, fórnfýsi, hugrekki og réttlæti. Draumur Freyju er samfélag á mismununar. Sjálf gerði það sem hún átti ekki að geta og tókst að sigrast á fordómum allt um kring. Hún þorði að eiga sér drauma og nýta fötlun sína öðrum til góðs. Þess vegna er fötlun forréttindi. Freyja er óvænt hetja á skjön við hefðina. „Ég fæddist inn í heim sem gerir engan veginn ráð fyrir mér …“ segir Freyja sem brýtur glansmyndir og verður hamingjusöm með því að taka að sér þýðingarmikið hlutverk í samfélaginu.
- Gunnar Hersveinn, Morgunblaðinu
Eldri færslur
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Árný Albertsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ásgeir Páll Ágústsson
- Ásta
- Begga "bleika"
- Benjamín Nökkvi Björnsson
- Bergdís Rósantsdóttir
- Berglind Elva
- Bergrún Ósk Ólafsdóttir
- Bergur Thorberg
- Betsý Árna Kristinsdóttir
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjarni Bragi Kjartansson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Bwahahaha...
- Davíð Jóhannsson
- Dísa Dóra
- Dofri Hermannsson
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Sveinbjörnsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elísabet Sigmarsdóttir
- Embla Ágústsdóttir
- E.R Gunnlaugs
- Erna Björk Svavarsdóttir
- Erna Sif Gunnarsdóttir
- Ester Júlía
- Eva H.
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Eva Hrönn Jónsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gísli Torfi
- Grétar Örvarsson
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðlaug Aðalrós
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðný M
- Guðríður Arnardóttir
- Guðrún Erla Sumarliðadóttir
- Guðrún Hauksdóttir
- Guðrún Helga Guðmundsdóttir
- Guðrún Jónsdóttir
- Guðrún Olga Clausen
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Helgason
- Halla Rut
- Hdora
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Helena Bjarnþórsdóttir
- Helen Garðarsdóttir
- Helga
- Helga Guðfinnsdóttir
- Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Helga Jóhannsdóttir
- Helga Jóna Kristmundsdóttir
- Helga skjol
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir
- Hulda Proppé
- Hulda Sigurðardóttir
- Hvíti Riddarinn
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- íd
- Ína Valsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Kafteinninn
- Karl Tómasson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Killer Joe
- Kjartan D Kjartansson
- Kolbrún Jónsdóttir
- Kolgrima
- kona
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Lady-Dee
- Laufey Fjóla Hermannsdóttir
- Lena pena
- Lovísa
- Maður dagsins
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- Marthen Elvar Veigarsson Olsen
- Mál 214
- Meðvirkill
- Morgunblaðið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Þóra
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Salka
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sara Diljá Hjálmarsdóttir
- Sara Guðmundsdóttir
- Señorita
- Sigríður Jónsdóttir
- Sigrún Huld Auðunsdóttir
- Sigurbjörg Guðleif
- Sigurður Kaiser
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Skvísumamman
- Sonja I Geirsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Steinunn Camilla
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Sveinn Waage
- Sæþór Helgi Jensson
- Söngfuglinn
- Thelma Ásdísardóttir
- Tiger
- Tinna Jónsdóttir
- Tómas Þóroddsson
- Trúnó
- Ugla Egilsdóttir
- Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Valgerður G.
- Vefritid
- Vertu með á nótunum
- Vilborg Auðuns
- What goes around, comes around
- Zuuber
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórdís tinna
- Þórey Vilhjálmsdóttir
- Þórunn Óttarsdóttir
Með ósk...
22.12.2007 | 19:51
... til ykkar um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. Takk fyrir að hvetja okkur áfram, samgleðjast og taka þátt í að við náðum settu markmiði - að gefa út bókina Postulín.
Munum um hvað jólin snúast....
Kærleikskveðja,
Freyja og Alma
Athugasemdir
Gleðileg jól skvísur mínar
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 22.12.2007 kl. 20:21
Elsku Freyja,
gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Það verður erfitt fyrir þig að toppa þetta ár á því næsta en það skiptir heldur engu máli. Þú ert og verður alltaf fyrirmynd og múrbrjótur. Það er í eðli þínu. Hlakka til að fylgjast með þér blómstra áfram.
Kær jólaveðja
Olga Björt (IP-tala skráð) 23.12.2007 kl. 00:22
Gleðileg jól
Birna Rebekka Björnsdóttir, 24.12.2007 kl. 13:39
Óska ykkur gleðilegra jóla og takk kærlega fyrir þessa frábæru bók, Postulín sem þið gáfuð út. Las hana og fannst mikið til koma og magnað að fræðast um þínar aðstæður. Fullt af praktískum atriðum sem hreyfihamlaðir þurfa að kljást við sem manni hefði ekki dottið í hug að gætu komið upp eins og þegar þú fluttir til Nýja Sjálands og var sagt að þú þyrftir að skila inn hjálpartækjunum þínum og hjólastólnum. Furðuleg regla vægast sagt.
Jólakveðja og hamingjuóskir með viðurkenningarnar þínar
Björg K. Sigurðardóttir, 24.12.2007 kl. 15:57
Sælar Alma og Freyja. Ég óska ykkur báðum hjartanlega til hamingju með bókina og gleðilegra jóla.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 24.12.2007 kl. 16:08
gleðileg jol.eg er lesa bokina þina nuna .feg hana jolagjof besta jolagjof sem eg feg.er ekki djoka.mer fynst svo gaman lesa og fræðast um apra,kv iris 19 ara .mep vægaþroskahomlun og efur mikin ahuga læra um alskonar fatlanir
iris eg (IP-tala skráð) 24.12.2007 kl. 22:29
Sælar stöllur, jólasveinninn heyrði óskir mínar sem voru m.a. bókin ykkar (hann les kannski bloggið mitt ;)...). Skemmst er frá því að segja að ég lagði hana ekki frá mér í dag heldur las í einum rykk og meira að segja gaf mér varla tíma til að fá mér konfekt með. Þetta er frábær bók og þakka þér innilega Freyja fyrir að opna heim þinn á svona lærdómsríkan hátt. Bókin og þú munuð hafa gríðarleg áhrif á samfélagið okkar. Gleðileg jól og takk fyrir mig.
Kristbjörg Þórisdóttir, 25.12.2007 kl. 23:52
Sælar og gleðilega hátíð, sama má segja um mig líkt og Kristbjörg segir hér á undan, fékk bókina undan jólatréinu, las hana í einum rykk í fyrradag, mátt varla vera að því að sinna börnunum . Takk fyrir að hleypa okkur inn í þínar aðstæður Freyja sem er ómetanlegt. Gleðilegt ár.
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 12:45
Kæra Freyja
Til hamingju með glæsilegan árangur á árinu. Gangi þér allt í haginn í komandi verkefnum og megi allir þínir draumar rætast. Ykkur Ölmu þakka ég kærlega fyrir mig. Þið unnuð verkefnið ykkar vel og uppskeran er mannbætandi og lærdómsrík bók sem hlítur að hafa sitt að segja í baráttunni að betra og jafnara samfélagi
auður (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 22:56
Kæra Freyja
ég á eftir að lesa bókina ykkar Ölmu en mér finnst þú alveg stórkostleg manneskja, kjörkuð og sönn. Þú ert sönnun þess að lífið er þess virði að lifa því hversu erfitt sem það annars virðist vera. Ég veit að þú hefur ótrúleg áhrif til góðs og ert hvatning mörgum, bæði heilbrigðum og þeim sem eiga við sjúkdóma að stríða. Þú ert engum lík og ég er stolt af þér þó ég þekki þig bara úr fjölmiðlum. Óska þér og þínum og Ölmu gleðilegs árs og frábærrar framtíðar.
Guðrún Olga Clausen, 30.12.2007 kl. 19:53
Gleðileg jól elsku Alma og Freyja og ég óska ykkur mikillar farsældar og gleði á nýju ári. Varðandi pistilinn þinn Freyja mín um þakklæti þá er ég alveg rosalega þakklát fyrir þig - en það veistu nú er það ekki!!!
Hittumst svo vonandi sem fyrst á nýja árinu.
Kossar og knús
Særún
Ps - amma mín er að tapa sér yfir bókinni ykkar - henni finnst hún æði (er 86 ára) og bara getur ekki lagt hana frá sér!
Særún (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 23:52
Kæra Freyja og Alma,
mínar betstu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár . megi það 2008 verða jafn gott eða betra en 2007. Bókin er ótrúleg,Alma ég endurtek það sem ég sagði á fundi Einstakra barna ,þú hefur ofboðlsega góða rödd. Lest líka ofboðslega vel.þið gerið það reyndar báðar. Þessi atriði skipta höfuðmáli þegar verið er að lesa inn á hljóðbók. Ég hef því miður haft svo mikið að gera að ég á eithvað smá eftir af mókinni en það er beðið eftir henni með spennu hér á heimilunu.
Hafið það sem best yfir áramótin,
Kveðja,
Elísabet.
Elísabet Sigmars (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 11:09
gleðilegt nýtt ár skvísur .
Þórunn Óttarsdóttir, 31.12.2007 kl. 13:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.