Nú fer hver að verða síðastur... (Áritun)

.. Því það er að öllum líkindum lokaáritun hjá okkur Ölmu fyrir jólin. Við verðum í Pennanum Kringlunni kl. 16:00 á morgun í rúma klukkustund. Við höfum fengið töluverðar fyrirspurnir hvað þetta varðar svo við hvetjum ykkur til að kíkja á okkur á morgun. Vonandi sjáum við ykkur sem flest!

Við fengum frábæra umfjöllun á laugardaginn sl. á Rás 2 um Postulín og fyrir þá sem hafa áhuga, er hægt að hlusta hér. Þátturinn er töluvert langur og gagnrýnin á Postulín var í seinni hlutanum.

Sjáumst á morgun!


Athugasemdir

1 identicon

Váa ekkert smá góð umfjöllun sit hérna heima með hvítvíns glas hvað annað hehe og er að hlusta á þetta hehe:) Besta bókin á árinu það er ekkert smá hrós. Sjáumst á sunnudaginn kíki kanski í kringluna á morgun

Þóra Kristín (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband