Kastljós
31.10.2007 | 12:34
Fyrir þá sem misstu af okkur í Kastljósinu í gær, já, eða langar til að horfa aftur, er bein slóð á viðtalið hér. Starfsmenn þáttarins tóku virkilega vel á móti okkur og andrúmsloftið var afslappað og notalegt. Það skiptir öllu máli.
Takk fyrir jákvæðu commentin, bæði hér og á förnum vegi - þið eruð frábær. Margir eru að forvitnast um hvenær bókin komi út en það er ekki kominn fastur dagur ennþá, við látum ykkur vita um leið.
Eigið góðan dag,
- Freyja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Freyja og Alma í Kastljósinu í kvöld!
30.10.2007 | 12:29
Í kvöld munum við Freyja fara í spjall til Ragnhildar Steinunnar í Kastljósinu. Vonum að þið verðið við skjáinn..
Bestu kveðjur,
Alma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Postulín
29.10.2007 | 19:05
Þá er bókin komin með nafn loksins eftir miklar vangaveltur, Postulín. Stökk bein mín gerðu það að verkum að á fyrstu árum ævi minnar mátti ekkert á móti blása án þess að ég brotnaði. Til að útskýra ástandið fyrir foreldrum mínum í upphafi var beinunum líkt við örþunnt postulín. Það leið ekki á löngu þar til fjölskyldan, meira í gríni en alvöru, kallaði mig stundum postulínsdúkku. Að þeirri ástæðu og ýmsum öðrum endurspeglar titillinn lífshlaup mitt og varpar ljósi á upplifun mína og viðhorf gagnvart fötlun minni og lífinu í heild. Nú er búið að hanna blöðung sem þið getið nálgast hér.
Í dag fórum við á fyrstu upplestur okkar og var hann hjá Rótarý í Garðabæ. Það var eins og við mátti búast tekið vel á móti okkur, við áttum góða stund og stigum okkar fyrstu skref í upplestri utan veggja heimilisins. Við þökkum fyrir okkur.
Nú erum við í óðaönn að bóka upplestra og má senda inn eftirspurn á almaogfreyja@forrettindi.is - við erum opnar fyrir öllu.
Við þökkum fyrir góðar viðtökur á færslunni hér fyrir neðan, það er svo gaman að heyra og sjá hvað þið hafið að segja. Hvatning ykkar er ómetanleg!
Kv. Freyja
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hver er normal?
27.10.2007 | 18:08
Við Freyja fórum áðan á málþing Femínistafélags Íslands sem bar nafnið ,,Kynlaus og litblind." Freyja hélt erindi á einni málstofunni undir yfirskriftinni ,,Hver er normal?" Freyja tók fyrir upplifun sína af því að finnast hún vera ,,afbrigðileg" á unglingsárum þegar kynþroskaskeiðið hófst og hvernig skilaboðin úr umhverfi okkar, sem er fullt af staðalmyndum voru að kæfa hana á tímabili. Freyja las kafla úr bókinni þar sem hún lýsir upplifun sinni á þessum viðkvæmu árum.
Formaður félags kvenna af erlendum uppruna, Tatjana Latinovic, hélt líka erindi og það var mjög athyglisvert að heyra hana segja frá stöðu innflytjenda. Ég vissi til dæmis ekki að innflytjendur geta ekki byrjað á því að sækja íslensku námskeið þegar þeir koma til landsins, heldur verða þeir að byrja að vinna til að fá landvistarleyfi og í kjölfarið komast þeir í stéttarfélag sem styrkir þá til að fara á íslensku námskeið. Þetta finnst mér mjög mikilvægt að fólk viti, til að við skiljum að þegar við förum út í matvöruverslun eða bakarí og afgreiðslufólkið talar ekki íslensku, hefur það ef til vill ekki fengið tækifæri til að læra málið enn! Þessu verðum við að sýna skilning og hætta að fordæma innflytjendur. Þeir hafa langflestir mikinn metnað til að læra málið okkar og munu gera það fyrr en síðar.
Einnig fannst mér mjög sorglegt að heyra að í rannsókn sem gerð var á meðal innflytjenda höfðu allar tælenskar konur í rannsókninni, nema ein, orðið fyrir beinum fordómum, þ.e. sparkað í þær, kallað á eftir þeim ,,hvað kostaðir þú eiginlega?" eða þær eltar á förnum vegi. Það er óhuggulegt að þetta sé að eiga sér stað í okkar samfélagi í dag. Þegar er talað er um svona atburði er yfirleitt strax byrjað að tala um innflytjandann sem er fórnarlamb í svona tilviki en við þurfum að beina sjónum okkar að gerendunum sem eru uppfullir af fordómum og þurfa ekki síður á hjálp að halda. Fræðsla í skólum um innflytjendur gæti hjálpað til í þessum efnum til að ungt fólk þrói ekki með sér ranghugmyndir. Eitthvað verður að gera til að þessu linni og til að minnka óttann hjá þeim sem eru fordómafullir, því að mínu mati eru formdómar ekkert annað en hræðsla og fáfræði. Það er ekki alltaf þeim fordómafulla að kenna, hann veit ef til vill ekki betur, en sem fullorðið fólk berum við ábyrgð á því að afla okkur þekkingar.
Um daginn fór ég í tælenska matvörubúð niðri í miðbæ Reykjavíkur. Ég er mikill aðdáandi tælenskrar matargerðar og ákvað loksins að gera tilraun til að elda sjálf Phad Thai núðlurétt sem ég hef svo oft pantað mér á veitingahúsum erlendis. Í búðinni var tælensk stúlka að afgreiða sem talaði góða íslensku, hún var ekki lengi að benda mér á allt sem ég þurfti og gefa mér góð ráð varðandi eldamennskuna. Á meðan ég hélt áfram að skoða mig um í búðinni komu tvær aðrar tælenskar konur inn með þrjú lítil börn. Þær heilsuðu afgreiðslu stúlkunni sem þær þekktu greinilega vel, en mér til mikillar undrunar töluðu þær allar saman á íslensku! Ég furðaði mig á þessu um stund, en áttaði mig svo á því að fyrir þeim var ekkert eðlilega. Kannski voru þær ekki einu sinni frá sama landinu eftir alltsaman! Fyrir þeim var þetta bara ,,normal."
Freyja kom eiginlega með setninguna sem sat hvað sterkast í mér eftir þetta málþing. ,,Mitt líf er mitt norm." Þetta segir eiginlega allt sem segja þarf, því hver og einn er ,,normal" fyrir sjálfum sér. Ef við lærum að bera virðingu fyrir margbreytileika fólks og áttum okkur á að það vera ,,normal" er marbreytilegt, munu fordómar minnka.
Með kærri kveðju,
Alma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Tímabært að ,,við" og ,,þið" falli úr gildi
26.10.2007 | 14:18
Inn á vef Reykjavíkurborgar var frétt um námstefnu Menntasviðs og Landssamtakanna Þroskahjálpar sem haldin var á Þjóðminjasafninu í gær um skólagöngu fatlaðra. Freyja var þar með erindi og slóðin á fréttina er:
http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-757/521_read-8568/
Bestu kveðjur,
Alma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)