Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Höfundur
Velkomin á síðuna okkar!
„ÞAÐ eru forréttindi að lifa með fötlun,“ er ögrandi fullyrðing sem Freyja Haraldsdóttir setur fram í bókinni Postulín sem hún skrifar með vinkonu sinni Ölmu Guðmundsdóttur. Fullyrðingin hljómar glannalega enda efaðist Freyja sjálf um hana. Og þó – oft felur sannleikurinn sig í því sem sýnist vera öfugmæli. Fullyrðingin er hugarhögg því hún kemur róti á hefðbundnar skoðanir – en reynist rétt vegna þess að Freyja hafði tekið ákvörðun um að vera hamingjusöm og hún vill einnig hjálpa öðrum til að sjá leiðina til hamingjunnar. Sársaukinn hefur verið skuggi Freyju frá fæðingu því hún fæddist með genagalla (OI) sem veldur því að bein hennar eru svo viðkvæm að þau geta hrokkið í sundur af litlu tilefni. „Ég var sú eina á Íslandi með OI á svo al varlegu stigi og því var engin reynsla af tilfellum eins og mínu.“ (48). Flestir gera tilraun til að feta vænlega slóð í lífinu til að höndla hina eftirsóknarverðu hamingju en slóð Freyju kostaði strit, puð og púl. „… upp á hvern einasta dag legg ég mig fram um það verkefni. Suma daga er það leikur einn og gengur eins og í sögu, en aðra daga þarf ég að beita öllu mínu hugarafli til að skrika ekki fótur og detta ofan í holuna.“ (235). Bókin Postulín á erindi til allra sem leita hamingjunnar því hún er vitnisburður um einstakling og fjölskyldu sem tekst með einstökum hætti að sigrast á mótlæti. „Ég er manneskja, ekki bara fötlun,“ segir Freyja og bendir fólki um leið á skylduna að gera ávallt greinarmun á persónum og þáttum sem valda mismunun. Freyja er góð fyrirmynd og því er áhugavert að kanna hver hennar fyrirmynd er, fyrir utan fjölskyldumeðlimi. Það er Martin Luther King Jr. og eiginleikarnir sem hann stóð fyrir: Staðfesta, fórnfýsi, hugrekki og réttlæti. Draumur Freyju er samfélag á mismununar. Sjálf gerði það sem hún átti ekki að geta og tókst að sigrast á fordómum allt um kring. Hún þorði að eiga sér drauma og nýta fötlun sína öðrum til góðs. Þess vegna er fötlun forréttindi. Freyja er óvænt hetja á skjön við hefðina. „Ég fæddist inn í heim sem gerir engan veginn ráð fyrir mér …“ segir Freyja sem brýtur glansmyndir og verður hamingjusöm með því að taka að sér þýðingarmikið hlutverk í samfélaginu.
- Gunnar Hersveinn, Morgunblaðinu
Eldri færslur
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Árný Albertsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ásgeir Páll Ágústsson
- Ásta
- Begga "bleika"
- Benjamín Nökkvi Björnsson
- Bergdís Rósantsdóttir
- Berglind Elva
- Bergrún Ósk Ólafsdóttir
- Bergur Thorberg
- Betsý Árna Kristinsdóttir
- Birna Rebekka Björnsdóttir
- Bjarni Bragi Kjartansson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynja skordal
- Bwahahaha...
- Davíð Jóhannsson
- Dísa Dóra
- Dofri Hermannsson
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Sveinbjörnsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elísabet Sigmarsdóttir
- Embla Ágústsdóttir
- E.R Gunnlaugs
- Erna Björk Svavarsdóttir
- Erna Sif Gunnarsdóttir
- Ester Júlía
- Eva H.
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Eva Hrönn Jónsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gísli Torfi
- Grétar Örvarsson
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðlaug Aðalrós
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðný M
- Guðríður Arnardóttir
- Guðrún Erla Sumarliðadóttir
- Guðrún Hauksdóttir
- Guðrún Helga Guðmundsdóttir
- Guðrún Jónsdóttir
- Guðrún Olga Clausen
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Helgason
- Halla Rut
- Hdora
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Helena Bjarnþórsdóttir
- Helen Garðarsdóttir
- Helga
- Helga Guðfinnsdóttir
- Helga Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Helga Jóhannsdóttir
- Helga Jóna Kristmundsdóttir
- Helga skjol
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir
- Hulda Proppé
- Hulda Sigurðardóttir
- Hvíti Riddarinn
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- íd
- Ína Valsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Kafteinninn
- Karl Tómasson
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Killer Joe
- Kjartan D Kjartansson
- Kolbrún Jónsdóttir
- Kolgrima
- kona
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristján B. Jónasson
- Lady-Dee
- Laufey Fjóla Hermannsdóttir
- Lena pena
- Lovísa
- Maður dagsins
- Margrét Guðjónsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- Marthen Elvar Veigarsson Olsen
- Mál 214
- Meðvirkill
- Morgunblaðið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ómar Ragnarsson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Þóra
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Salka
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sara Diljá Hjálmarsdóttir
- Sara Guðmundsdóttir
- Señorita
- Sigríður Jónsdóttir
- Sigrún Huld Auðunsdóttir
- Sigurbjörg Guðleif
- Sigurður Kaiser
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Skvísumamman
- Sonja I Geirsdóttir
- Sóley Tómasdóttir
- Sólveig Klara Káradóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Steinunn Camilla
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Sveinn Waage
- Sæþór Helgi Jensson
- Söngfuglinn
- Thelma Ásdísardóttir
- Tiger
- Tinna Jónsdóttir
- Tómas Þóroddsson
- Trúnó
- Ugla Egilsdóttir
- Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Valgerður G.
- Vefritid
- Vertu með á nótunum
- Vilborg Auðuns
- What goes around, comes around
- Zuuber
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórdís tinna
- Þórey Vilhjálmsdóttir
- Þórunn Óttarsdóttir
Verjum velferðina!
23.11.2008 | 01:25
Útifundur á Ingólfstorgi mánudaginn 24. nóvember kl. 16.30
Dagskrá:
Tónlistaratriði
Tómas R. Einarsson og Ragnheiður Gröndal
Gerður A. Árnadóttir
formaður Þroskahjálpar
Árni Stefán Jónsson
varaformaður BSRB
Halldór Sævar Guðbergsson
formaður Öryrkjabandalags
Margrét Margeirsdóttir
formaður Félags eldri borgara í Reykjavík
Fundarstjóri verður Björg Eva Erlendsdóttir
Fjölmennum á fundinn og sýnum að við látum ekki brjóta velferðarþjónustuna niður
Íslendingar! Við höfnum því að ráðist verði að undirstöðum samfélagsins með stórfelldum niðurskurði á velferðarkerfinu. Þegar þrengir að er mikilvægt að ekki sé vegið að almenningi. Við höfnum sérhverri aðför og krefjumst þess að stofnanir samfélagsins verði styrktar á erfiðum tímum.
Ég fagna þessu framtaki Þroskahjálpar, Sjálfsbjargar, Félags eldri borgara og BSRB. Í samfélaginu okkar hafa velferðamál oft orðið undir í þeim hraða, einstaklingshyggju og öðru sem hefur stundum blindað okkur. Þrátt fyrir fjármálakreppu hættir fatlað fólk, aldrað fólk og allt fólk yfirleitt ekki að lifa. Margir þurfa aðstoð til þess og þjónustu til að geta tekið þátt í samfélaginu með reisn og gefið af sér og lagt því lið með menntun, vinnu og öðru slíku. Ef sú aðstoð hverfur og þjónustan skerðist enn frekar - ekki er hún nú til fyrirmyndar fyrir, mun þjóðfélagið sitja uppi með enn alvarlegri vanda og mun meiri kostnað.
Til að sporna við því að fólk verði svipt velferð sinni verðum við að standa saman. Ef það er ekki þörf á samstöðu núna, þá hvenær?
Hlakka til að sjá ykkur öll, hvert eitt og einasta
Athugasemdir
Ég er sammála því að ef það er ekki einmitt ástæða núna til að sýna samstöðu og láta í sér heyra þá veit ég ekki hvenær það ætti að vera. Að sjálfsögðu má engan veginn fara út í það núna að skera niður í velferðarþjónustu - svo margt sem þar er þegar skorið við nögl. Það má bara alls ekki gerast að þeir sem þurfa slíka þjónustu fari að lifa við aðstæður sem ekki væri hægt að kalla mannsæmandi - nógu erfitt er fyrir svo marga þegar þó ekki verði bætt á meiri niðurskurði. Það mætti víða skera niður frekar áður en í slíkt væri farið - t.d. leggja niður nokkrar nefndir og aðstoðarmenn hjá þingmönnum og láta þá fara að vinna vinnuna sína sjálfir.
Mætti líka afnema alla þá bitlinga sem þingheimur hefur skaffað sér - án þess að vinna fyrir honum. Mætti örugglega spara milljónir - og meira - ef bara þingheimur væri granskoðaður og skorinn niður ...
Knús og kram yfir til ykkar og hafið yndislegan sunnudaginn.
Tiger, 23.11.2008 kl. 02:09
Vildi að ég gæti mætt en sendi barráttukveðjur héðan frá útlandinu!!!
Árný (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 08:31
Við mætum og hvetjum alla aðra til að mæta það er ekki til afsökun til að sitja heima
jón og magga (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 12:54
Sendi baráttukveðjur frá Árósum :) vildi að ég gæti mætt!
Kristbjörg Þórisdóttir, 23.11.2008 kl. 15:38
Hvar hafa stéttarfélögin verið síðustu tvo mánuðina? Það eina sem sést hefur er falleg lopapeysuauglýsing frá VR. Fundaherferð ASÍ þar sem Gylfi hagfræðingur ASÍ borðar ESB og evru fyrir Samfylkinguna og nú fundarboð SFR á Ingólfstorgi!
Af hverju hvetja stéttarfélögin ekki sitt fólk til að mæta á Austurvelli ?
Af hverju að dreifa kröftunum?
Samt. Allir á Ingólfstorg, Háskólabíó á mánudag, Austurvöll á laugardag.
Farið svo með pottana og lemjið í þá fyrir utan bankana, Fjármálaeftirlitið, Seðlabankann og ráðuneytin. Alla daga, alltaf. Svælið liðið út.
101 (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 15:47
Já hvar hafa stéttarfélögin verið,þar er sennilega sama vitleysan í gangi og annarstaðar formennn á ofurlaunum,úr takt við hinn almenna félagsmannn og síðan sú vitleysa sem Gylfi og samfylkingin eru að boða,evra og ESB eigi að bjarga öllu,er eins og það sé að gerast á nokkrum dögum,við þörnumst aðgerða nú,síðan þarf að sýna hvað er unnið með inngöngu í ESB,hátt atvinnuleysi,hvað með bændur,sjávarútveg o.f.l.
Hafþór (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 17:26
Öryrkjubandalagið er líka með.
Ég mæti. Vonandi verður þar fjölmenni. Bestu kveðjur til þin.
Heidi Strand, 23.11.2008 kl. 21:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.